Komnir margir mánuðir síðan ég lét í mér heyra síðast... Fullt búið að gerast og svo er bara fullt að gera hjá mér alltaf!
Veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja, fór í hestaferð í byrjun sumars með elsku Kollu vinkonu minni, fór svo á Dýrafjarðardaga og gisti hjá Siggu frænku í leiðinni á Skriðu. Ohhh það var svo gott að komast í sveitina til Siggu og fara í göngutúra, sigla á Syðridalsvatni, fara í sund og bíltúr og síðast en ekki síst þá vorum við svo heppin að það var ball með Ný dönsk á Bolungarvík og við skelltum okkur þangað

Svo skelltum við okkur á Stóra-Fjall í viku á leiðinni heim þar sem Friðrik fékk að leika sér á traktor og gröfu og Kolla Emma fékk að fara á reiðnámskeið. Það var að sjálfsögðu yndislegt að vera þar líka

Annars er bara alltaf nóg að gera í skólanum, var í prófi á mánudaginn og fékk 8,7 og er alveg alsæl með það
Verknámið mitt byrjar svo í næstu viku og ég verð á deild 12-G á LSH, mjög spennandi að sjá hvernig það verður. Reyndar verður rosalegt álag á meðan verknáminu stendur enda þarf að skila skrilljón verkefnum og ritgerðum á meðan.
Svo styttist óðum í prófin en ég massa þau eins og alltaf

Gekk svo vel í prófunum í vor að ég er búin að vera hálf kærulaus í haust, ekkert verið að læra neitt of mikið

Síðustu helgi komu Svandís "systir" og strákarnir hennar í heimsókn frá Hellu og gisti hjá mér í Keflavíkinni í 2 daga. Við Svandís og Guðrún skelltum okkur á Sálarball á Top of the Rock hér á vellinum og mikið svakalega var það gaman... Haha þegar ég les þetta yfir er eins og ég sé alltaf á einhverju djammi en sannleikurinn er sá að þetta eru einu skiptin sem ég er búin að fara út á lífið á þessu ári (held ég, aðeins farin að kalka...)
Urður skvísa er algjör skvísa eins og alltaf og heldur á mér hita þegar ég sit í sófanum eða skrifa í tölvuna, er alltaf við fæturna á mér og elskar mig út af lífinu eins og ég elska hana

Núna er svo gotsystir hennar Ísafoldar hún Salka í pössun hjá okkur. Kom til okkar í enda ágúst og verður fram í janúar. Eigandinn hennar er nefnilega í Kína! Henni og Urði samdi nú ekkert sérstaklega vel til að byrja mér enda Urður einstaklega matsár og Salka alveg einstaklega stríðin (ekki góð blanda...) Núna eru þær hinsvegar óaðskiljanlegar og eru bestu vinkonur

Annars er það sem hvílir mest á mér þessa dagana er það að ég kærði manninn sem misnotaði mig sem barn/ungling. Allt ferlið tekur afskaplega langan tíma og veldur mér miklu álagi. Ég er í sjálfu sér búin að vinna nokkuð vel úr þessari reynslu enda búin að stunda Stígamót grimmt síðustu 2 árin, bæði í einkaviðtölum, hópavinnu og svo nú síðast á 12 spora fundum þeirra sem lifað hafa af kynferðislegt ofbeldi.
Ástæðan fyrir að ég ákvað að kæra var sú að ég er búin að burðast með sektarkenndina, skömmina og vanlíðanina yfir þessu í mörg ár. Ég kenndi mér um þar sem ég lamdi ekki frá mér, var ekki nógu skýr með að þetta vildi ég ekki ofrv. En sannleikurinn er sá að ég var 12 og 13 ára gömul og hefði aldrei átt að vera í þeim aðstæðum að þurfa að segja nei. Hann var fullorðinn maður og nýtti sér algjöra andlega, þroskalega og líkamlega yfirburði sem hann hafði yfir mér. Þess vegna fannst mér vera kominn tími til að senda út þau skilaboð að það sem hann gerði var rangt og nú er komið að honum að burðast með vanlíðanina, skömmina og sektarkenndina fyrir það sem hann gerði mér.
En svona til að enda þetta aðeins á léttu nótunum þá ætla ég að segja ykkur einn kreppubrandara

Einn verðbréfadrengurinn var spurður að því hvernig hann svæfi þessa kreppudaga. Hann svaraði "Alveg eins og ungabarn", viðmælandinn var hissa á þessu svari og bað um frekari útskýringu og verðbréfadrengurinn svaraði "já alveg eins og ungabarn, vakna á klukkutíma fresti grátandi og búinn að pissa í mig!"
Þar til næst!
Túrílú!
Gerður...