Bara kominn mánuður síðan ég bloggaði síðast og rúmlega það!
Ég er sko alveg með það á hreinu að enginn dreymir jafn steikta drauma
og ég, ég ætla ekki einu sinni að reyna að útskýra það sem gekk á í
hausnum á mér í nótt en við sögu komu: kennarar, súmóglímubelti,
skrautpáfagaukar, börn, ælandi kettir, stígamótakonur og sígarettur í
kaffibrúsa

Núna sit ég við tölvuna heima og á að vera að klára verknámsverkefnið
mitt sem ég þarf að skila á mánudaginn takk fyrir! Ekki hálfnuð og er
bara að dúllast við að blogga, ég meina hvað er að manni!
Í kvöld fer ég svo upp í bústað með Adda mínum, ætlum að kveikja upp í
arninum og lesa í ró og friðið, Addi væntanlega les einhverjar bækur um
stríð, orustur eða hvað sem það er sem hann er alltaf að lesa en ég
verð sko að drukkna í Lífeðlisfræði glósum og stóru, stóru, stóru
lífeðlisfræðibókinni minni... Svo á morgun sækjum við allan
krakkaskarann (Kollu, Róbert og Friðrik) og þau verða hjá okkur seinni
nóttina í bústaðnum. Sigga, Steini og co. ætla svo vonandi að kíkja til
okkar um kvöldið og grilla með okkur

Annars er alltaf bara nóg að gera, bæði í skólanum og utan hans. Kolla
er t.d. á fullu að æfa núna fyrir tónleika sem verða 4.maí og ég geri
mitt besta til að reyna að finna mér tíma til að hjálpa henni, gengur
misvel... Svo eru náttúrulega bara 12 DAGAR í fyrsta prófið

Sem er
einmitt lífeðlisfræði





EN það verður allt í lagi, ég rúlla þessu upp eins og mér einni er lagið (klappið fyrir Gerði sem fær bjartsýnisverðlaun ársins)
EN JÆJA.... Held ég verði að fara að drulla mér að halda áfram með
þetta helv... verkefni, þarf að finna einhverjar heimildir og svona

önn till leiter

Túrilú